Þá ætti það að vera ljóst

Kafeel Ahmed kom aldrei til Íslands. Það er einungis saga sem hann spann til að útskýra fjarveru sína; að hann væri á Íslandi til að vinna að verkefni tengdu rannsóknum á gróðurhúsaáhrifunum. Vonandi fer fólk að skilja þetta; ekki síst fréttafólk.
mbl.is Átti að segja að tilræðismaður væri í fríi á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Raunveruleikinn er oft minna spennandi greinilega.  Þarfagreinir, af hverju linkaðir þú á frístundaheimili við eina færsluna mína í gær?  Er að drepast úr forvitni (það var færslan um Árna Johnsen).  Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.8.2007 kl. 13:00

2 Smámynd: Þarfagreinir

Úbbs, það hefur verið vitlaus hlekkur sem fór inn. Þetta er sá rétti, sem reyndist síðan vera sá sem var í fréttinni fyrir.

Hinn hlekkurinn var í minninu út af umræðu á Málefnunum um laun bloggara - Sóley Tómasdóttir kemur þarna fyrir nefnilega; fólk var að velta fyrir sér hvað hún starfaði við. 

Já, raunveruleikinn er oft minna spennandi.

Þarfagreinir, 3.8.2007 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband