12.6.2007 | 16:55
Sálmur
Undirrót allra lasta
Ágirndin kölluđ er
Frómleika frá sér kasta
Fjárplógsmenn ágjarnir,
Sem freklega elska féđ,
Auđi međ okri safna,
Andlegri blessun hafna,
En setja sál í veđ.
---
Gott hjá Samfylkingunni annars ađ láta í sér heyra. Mér er ţó spurn; greiddu ekki fulltrúar flokksins í bankaráđi atkvćđi međ hćkkuninni? Mér skilst ađ ţeir hafi 'náđ' ađ lćkka hana úr 250 ţúsundum niđur í 200 ţúsund, en hví ekki ađ greiđa atkvćđi gegn hćkkun alfariđ, fyrst flokkurinn leggst núna svo gegn henni?
Önnur spurning: Finnst Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni sér virkilega stćtt á ađ sitja í stjórn ríkisrekinnar stofnunnar, ofan á ţađ ađ ţiggja laun frá ríkisháskóla? Ég veit ađ ţetta er óttaleg smámennska í mér, en ég hef alltaf furđađ mig á ţví hvernig í fjáranum mađurinn getur samrćmt ţađ í kollinum á sér ađ vera últra-frjálshyggjumađur viđ ţađ ađ hann ţiggur nánast allar sínar tekjur úr ríkiskassanum. Hér mćtti líka nefna til dćmis Ríkissjónvarpiđ, Námsgagnastofnun, og sitthvađ fleira ... en á ferli prófessorins eru afskaplega fá dćmi ţess ađ hann hafi fengiđ peninga frá einkaađila. Kúnstugt.
![]() |
Bankaráđ Seđlabankans gagnrýnt á Alţingi |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:06 | Facebook
Athugasemdir
Ć, sko, ţú veist, ţađ er sko allt öđruvísi ţegar ţađ er Hannes. Hann er svo spes.
Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 13.6.2007 kl. 01:37
Já, Hannes er spes. Ţví neita ég ekki.
Ţarfagreinir, 13.6.2007 kl. 16:51
Mér finnst reyndar ţessi sálmur eđa ljóđ lýsa Sjöllunum 100%
Gott hjá ţér Dóri minn !
Guđsteinn Haukur Barkarson, 18.6.2007 kl. 19:07
Sálmurinn er reyndar eftir Hallgrím Pétursson, og Davíđ Oddsson vitnađi í hann í áramótarćđu sinni, áriđ sem hann tók sparifé sitt út úr KB banka. Mér ţótti ţetta ţví eiga vel viđ hér.
Ţarfagreinir, 18.6.2007 kl. 19:56
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.